Helmingur íslendinga vill nýja mynt

Rétt ríflega helmingur Íslendinga vill taka upp annan gjaldmiðil en krónuna samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins sem birt var í morgun, en þar kemur fram að 53% aðspurðra eru þeirrar skoðunar en 47% eru upptöku annarrar myntar andvíg.

Spurt var hvort landsmenn vildu taka upp annan gjaldmiðil en krónuna án tillits til inngöngu í Evrópusambandið.

Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands segir við blaðið í morgun að þessi niðurstaða komi sér ekki á óvart: \"Vinsældir íslensku krónunnar fylgja dálítið hagsveiflunni og dala við vaxtahækkanir Seðlabankans eða gengisfalls,\" segir dósentinn og bætir við: \"Ég man eftir mjög ákveðinni evruumræðu upp úr 2000, 2006 og síðan eftir 2008. Fólk væntanlega horfir nú til vaxtamunarins við Evrópu þannig að þetta kemur ekki á óvart,\" segir Ásgeir og bendir á að almennt hafi landsmenn skipst nokkuð í tvo hópa í afstöðu sinni í gjaldmiðilsmálum.