Þátturinn Atvinnulífið hefur aftur göngu sína í kvöld og er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.30. Í þessu fyrsta þætti á árinu 2018 er fjallað um harkalegar aðferðir skiptastjóra þrotabús fyrirtækisins Sigurplasts (síðar Splast) gagnvart fyrrum eigendum fyrirtækisins. Fyrirtækið var lýst gjaldþrota í september 2010 og málinu lauk fyrir Hæstarétti árið 2016 þar sem skiptastjórinn varð að lúta í lægra haldi. Grímur Sigurðsson, hrl, sem skipaður var skiptastjóri þrotabúsins fór m.a. í rifturnarmál gagnvart ellilífeyrisþeganum Sævari Sigurðssyni á þeim forsendum að hann væri faðir fyrrum framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Sævar hafði starfað sem bílstjóri um áratugaskeið og átti sér einskis ills von og varð á endanum að endurgreiða þrotabúinu 187 þús. kr. kröfu frá skiptastjóranum sem lagði út í kostnað sem nam um 1,1, milljón kr. til að afla andvirði kröfunnar, eða nálægt sexföldu virði hennar. Þetta ásamt mörgum öðrum atriðum málsins verður til umfjöllunar í Atvinnulífinu í kvöld. Umsjónarmaður er Sigurður K. Kolbeinsson og kvikmyndatöku annaðist Friðþjófur Helgason.
Rifti máli manns til að ná í 187 þús. kr.
Fleiri fréttir
Nýjast