Rífast um notkun Eiríks á orði í fyrirsögn

„Héddna... var ekki búið að ræða um sérdeilis óviðeigandi orðanotkun í ræðu og riti ? Eða var mig bara að dreyma?“ segir maður nokkur inni á Facebook-hóp Fjölmiðlanörda og deilir skjáskoti af frétt Eiríks Jónssonar, sem ber fyrirsögnina „Múlattar á eggi“. Heitar umræður sköpuðust í kjölfarið um orðnotkunina, sem sumir vilja meina að sé gamaldags og rasískt en aðrir að feli alls ekki í sér neikvæða merkingu.

Í frétt Eiríks rekur hann það hvernig Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleikstjóri sé á ferð um landið. Hann birtir mynd sem Hrafn birti á samfélagsmiðlum og vitnar í texta Hrafns við myndina: „Múlattarnir liggjandi á eggjum á Djúpavogi – heilsuðum upp á Sigurð Guðmundsson og hans ágætu konu Ineke.”

Ég bíð spenntur eftir holskeflu af kommentum frá íslenskum karlmönnum sem rísa upp til að verja notkun orðsins "múlatti,“ segir einhver á Facebook-hópi Fjölmiðlanörda. „M aður þarf ekki að býða lengi eftir reiðu hvítu fólki sem telja sig vera bjargvættir hvítir riddarar sem verja öll "fórnarlömb" sem tileinka "kúguðum minnihlutahópum", og gera það með því að banna hluti, klæðnað, trúir, orð og allt sem gæti kannski mögulega sært einhvern væmnann einstakling þarna úti,“ svarar einn þá.

Nördarnir ræða svo fram og til baka um málið. Einhverjir segja við Hrafn að sakast, því hann skrifaði jú orðið fyrst í færslu með myndinni og fyrirsögnin tilvísun í þau, en aðrir benda á að það sé á ábyrgð blaðamanns hvað hann ákveður að setja í fyrirsögn. Í þessu tilviki sé orðið tildæmis ekki notað í beinni tilvitnun í Hrafn.

Einhverjir virðast þá ekki kannast við neikvæða merkingu orðsins: „Þegar ég var að alast upp var múlatti notað um þá sem voru af tveim kynstofnum.Ég hef aldrei séð neitt ljótt við þetta orð enda var það lýsingarorð yfir blöndað fólk sem er mjög fallegt fólk,og ekki á neinn hátt notað til að gera lítið úr neinum.“

„þetta er bara virkilega ljótt orð.. ég yrði ekki sátt ef einhver færi að kalla börnin mín múlatta,“ svarar annar þá.