Riðuveiki hefur verið staðfest á búi á Skagafirði. Þetta kemur fram í tilkynningu Matvælastofnunar í dag. Þetta er fjórða tilfelli hefðbundinnar riðu sem greinist á Norðurlandi vestra síðan í febrúar í fyrra. Þá hafði ekki greinst riða á landinu síðan árið 2010.
Unnið er að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða, segir sömuleiðis í tilkynningunni.
Í síðustu viku fékk bóndinn í Brautarholti í Skagafirði grun um riðuveiki í kind og hafði samband við héraðsdýralækni. Kindinni var lógað og sýni sent til Tilraunastöðvar Háskóla Íslands á Keldum, sem staðfesti á miðvikudag í þessari viku að um riðuveiki væri að ræða.
Búið er í Skagahólfi en þar hefur riðuveiki komið upp á ellefu búum á undanförnum 20 árum og þar af á fjórum búum í nágrenni Varmahlíðar, þannig að segja má að um þekkt riðusvæði sé að ræða. Á þessu búi var síðast skorið niður vegna riðu árið 1987. Á bænum er nú um 290 fullorðið fé.