Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem rætt er við forsvarsmenn Hringbrautar, N4 og ÍNN um áhrifin af því að umrætt frumvarp yrði að lögum.
Sjö þingmenn úr þremur flokkum standa að frymvarpinu sem var fyrst lagt fram á þinginu síðasta vetur og er endurflutt nú. Samkvæmt því yrði texti á íslensku að fylgja öllu myndefni sem fjölmiðlaveitur sýna. Tilgangurinn er að gera heyrnarlausum og heyrnardaufum kleift að fylgjast með útsendingunum. Í skýringum með frumvarpinu kemur fram að 365 og Fjölmiðlastofa hafi bent á það við málsmeðferð frumvarpsins í fyrra að þessu myndi fylga kostnaður fyrir fyrirtækin.
RÚV textar alla sjónvarpsþætti á íslensku sem unnir eru fyrirfram og einnig fréttatíma en ekki þá þætti sem eru sendir beint út. Aðrir ljósvakamiðlar texta aðeins erlent efni, svo sem skylda er til, en hún hefur hingað til ekki náð yfir íslenskt efni.
Ingvi Hrafn Jónsson, eigandi ÍNN og Sigmundur Ernir Rúnarsson, sjónvarpsstjóri Hringbrautar segja í Morgunblaðinu í dag að þetta yrði líklega sínum miðlum ofviða. Sigmundur Ernir segir Hringbraut rekna á fimm til sex föstum stöðugildum og það sjái hver maður í hendi sér að það yrði erfitt að bæta við einhverjum stöðugildum sem skapi þeim í sjálfu sér engum tekjum.
María Björk Ingvadóttir, framkvæmdastjóri N4, segir að þar á bæ myndu menn leita allra leiða til að geta þetta en kvaðst ekki geta sagt til um hvort miðillinn réði við þennan kostnað.
Haft er eftir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur og Svandísi Svavarsdóttur, tveimur flutningsmönnum frumvarpsins, að til greina komið að ríkissjóður komi að kostnaði við textun.