Riðuveiki hefur verið staðfest á bænum Álftagerði í nágrenni Varmahlíðar í Skagafirði og er þetta fyrsta tilfelli riðuveiki sem greinist á árinu. Síðast greindist riða á þessu svæði í september síðastliðnum á bænum Vallanesi og var það jafnframt eina tilfelli síðasta árs. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Matvælastofnun, sem vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða.
Riðan greindist í sýnum úr tveimur kindum frá bænum þar sem nú eru um 370 fjár. Bóndinn hafði samband við héraðsdýralækni vegna kindanna sem sýndu einkenni riðuveiki. Kindurnar voru aflífaðar og sýni tekin og send á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum þar sem riðuveiki var staðfest í báðum sýnum.
Í tilkynningunni er einnig greint frá því að fram til ársins 2010 greindist riða á nokkrum bæjum á landinu á hverju ári en að engin tilfelli hefðbundinnar riðu greindust á árunum 2011-2014. Riðan sé því á undanhaldi.
Einnig kemur fram að búið sé í Húna- og Skagahólfi og að í því hefur riðuveiki komið upp á átján búum á undanförnum 20 árum. Á þessu búi greindist veikin síðast árið 2008. Riðuveiki hefur komið upp á mörgum bæjum í Varmahlíð í gegnum tíðina og mætti því segja að um þekkt riðusvæði sé að ræða.