Tvær konur voru handteknir síðastliðinn föstudag í umfangsmikilli lögregluaðgerð vegna fjárkúgunartilraunar á hendur Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra.
Þetta kemur fram á fréttavefnum visir.is í morgun en samkvæmt upplýsingum hans var reynt að kúga milljónir út úr Sigmundi og fjölskyldu hans. Þar segir að í bréfi sem barst Sigmundi og fjölskyldu hafi þess verið krafist að fjölskyldan reiddi fram nokkrar milljónir króna til að koma í veg fyrir að upplýsingar sem eiga að vera viðkvæmar fyrir forsætisráðherra yrðu gerðar opinberar.
Málið var umsvifalaust tilkynnt lögreglu og réðist hún í umfangsmiklar aðgerðir á föstudag sem leiddu til handtöku einstaklinganna tveggja. Fram kemur að Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki viljað tjá sig um málið þegar eftir því hafi verið leitað í morgun. Þá hafi hann ekki viljað staðfesta að aðgerðirnar hefðu átt sér stað en sagði að von væri á fréttatilkynningu frá lögreglunni fyrir hádegi.
Í fréttinni var einnig vitnað í Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmann forsætisráðherra sem kvaðst ekki geta tjáð sig um málið í morgun.