Reynslumikið fólk skipar stjórn hörpu

Klúðrið vegna launamála í Hörpu, tónlistarhúsi, þar sem forstjóri var hækkaður í launum en starfskjör þeirra lægst launuðu skert, hefur vakið upp miklar umræður um stjórnsýslu í þessu opinbera fyrirtæki.

Af því tilefni er fróðlegt að rifja upp hverjir skipa nú stjórn Hörpu en Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra skipaði stjórnina í apríl sl. Þegar stjórnin er skoðuð, kemur á daginn að um þrautreynt fólk er að ræða. Meðal annars fólk með mikla stjórnunarreynslu. Þess vegna vekur það enn meiri furðu að stjórnin hafi heimilað vinnubrögð af þessu tagi. Stjórn Hörpu skipa:

Þórður Sverrisson formaður. Hann var lengi framkvæmdastjóri hjá Eimskip og síðar forstjóri Nýherja. Hefur auk þess átt sæti í fjölda stjórna. Þar á meðal Viðskiptaráðsins og Granda hf. en hann féll í kosningu þar fyrir tveimur árum. Hann býr yfir ártuga stjórnunarreynslu.

Arna Schram hefur starfað sem blaðamaður og fjölmiðlafulltrúi í áratugi og verið formaður Blaðamannafélags Íslands.

Árni Geir Pálsson hefur starfað sem stjórnandi eða ráðgjafi í áratugi. Hann hefur m.a. verið forstjóri Icelandic sem er stórfyrirtæki á sviði útflutnings á sjávarafurðum.

Aðalheiður Magnúsdóttir keypti nýlega Ásmundarsal og rekur þar safnastarfsemi. Hún og eiginmaður hennar, Sigurbjörn Þorkelsson, eiga Fossa fjármálafyrirtæki að mestu leyti.

Vilhjálmur Egilsson rektor á Bifröst og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Alþingismaður Sjálfstæðisflokks í 12 ár. Hann var helsti samningamaður atvinnulífsins á vinnumarkaði frá 2006 til 2013 og þekkir viðkvæma og flókna stöðu á þeim vettvangi betur en flestir.

Þrátt fyrir alla þessa reynslu innan stjórnar Hörpu hafa verið gerð mistök sem eru að skaða ímynd stofnunarinnar mikið. Harpa er í eigu ríkissjóðs að 54% hluta og Reykjavíkurborgar að 46% hluta.

Rætt hefur verið um að skipta út allri stjórninni vegna þessara atburða. Nú er beðið viðbragða fjármálaráðherra sem fer með skipunarvaldið.