Björn Þorláksson, fréttamaður og upplýsingafulltrúi til áratuga, hefur gefið út stuttar leiðbeiningar ætlaðar Ingólfi Þórarinssyni, best þekktum sem Ingó Veðurguð, í núverandi aðstæðum.
Líkt og alþjóð veit hafa komið út fjöldi nafnlausra ásakana á hendur Ingó, hann hafnar þeim og hefur kært frásagnirnar til lögreglu. Þá hefur hann fengið lögmann til að hóta nokkrum aðilum til viðbótar málsókn.
Björn segir á Facebook:
„Ef ég væri Ingó myndi ég hætta að senda bréf, hætta að krefjast bóta, reyna fremur að skilja að það verður lítið að gera í spilamennsku á næstunni, reyna að skilja að fæstir þolendur gera það að gamni sínu að opinbera sig með þeim hætti sem raun ber vitni.“
Svo er tvennt í stöðunni:
„Ef saklaus, á hann að stíga fram í fjölmiðlum og leyfa eigin þjóð að horfa í augun á sér. Reyna að endurnýja trúverðugleikann.
Ef sekur, byrjar nýtt upphaf oftast á iðrun og innri endurskoðun en ekki kröfum um fébætur.“