Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, skrifar pistil í dag á vef miðilsins þar sem hann fer yfir stöðuna innan Samfylkingarinnar eftir leynilega könnun uppstillingarnefndar flokksins sem skapað hefur talsverðan usla.
Það er ekki síst meint afhroð þingmannsins Ágústar Ólafs Ágústssonar sem hefur valdið óánægju meðal hluta flokksmanna. Að mati Reynis þarf sú niðurstaða þó ekki að koma á óvart – Ágúst Ólafur hefði mögulega komist upp með brot sitt í öðrum flokki en innan Samfylkingarinnar sé það ófyrirgefanlegt og að allt tal um að atlagan að Ágústi Ólafi sé aðför að alkóhólista sem hafi sótt sér lækningar sé „rakalaus þvæla“
„Ágúst Ólafur á sér sögu sem dólgur í samskiptum við konu. Framkoma hans flokkast sem kynferðisleg áreitni. Þingmaðurinn gekkst við athæfi sínu og vék af Alþingi, tímabundið. Þá undirgekkst hann áfengismeðferð og sneri aftur á þing og óskaði eftir fyrirgefningu. Samfylking gefur sig út fyrir að vera jafnréttissinnaður flokkur og talar ákveðið gegn hvers kyns kvenhatri. Þetta er grunntónninn í stefnu flokksins og sá sem brýtur gegn þeim boðorðum á varla afturkvæmt nema að hafa farið í gegnum hreinsunareld. Þingmaðurinn stytti sér leið og því fór sem fór,“ skrifar Reynir.
Þá bendir Reynir á að Samfylkingin hafi áður losað sig við þingmann sem gerðist sekur um svipaða framkomu. „Helgi Hjörvar var lengi í framlínu flokksins. Eftir ásakanir um að misbjóða konum hvarf Helgi af hinu pólitíska sviði.“
Að mati ritstjórans er Ágúst Ólafur einfaldlega eitrað peð. „Margir vita hvernig skákin fer ef menn sjá ekki við þeirri stöðu“.