Reynir föðurbróðir - og flæðiskerið

Lítil og næsta yfirlætislaus fésbókar-frásögn Benedikts Jóhannessonar, ritstjóra Vísbendingar og útgefanda Frjálsrar verslunar um arðgreiðslutilburði tryggingafélaganna fer nú með himinskautum á netinu.

\"Ég heyrði í Reyni föðurbróður mínum í kvöld. Hann var að spyrja mig hvort það væri rétt að tryggingafélögin væru að greiða arð með því að minnka bótasjóði sem þeir tryggðu ættu.

Jú, ég sagði að líklega væri hægt að orða það þannig.

Reynir sem verður 96 ára eftir rúmlega þrjá mánuði sagði mér þá að hann hefði nýlega fengið 2.600 krónur frá Sjóvá fyrir að hafa verið tjónlaus árið 2015.

„En ég er að hugsa um að endursenda peningana til þeirra“, sagði hann „og segja þeim að ég fái mín eftirlaun og svo peninga frá Tryggingastofnun þannig að ég hafi alveg nóg. Það sé nær að þeir nýti peningana til þess að styrkja hluthafana, sem greinilega séu á flæðiskeri staddir.“

Og svo mörg eru þau orð