Reynir: „byrjunin lofaði ekki góðu því það varð dauðsfall um borð“

„Ég hef aðeins einu sinni á ævinni eytt jólum fjarri fjölskyldu. Þá fór ég túr á togara. Byrjunin lofaði ekki góðu því það varð dauðsfall um borð.“

Þannig hefst frásögn eftir Reyni Traustason fjölmiðlamann. Þar greinir Reynir frá því að hann verði fjarri stórfjölskyldunni þessi jólin. Frá þessu greinir Reynir á Facebook. Þá rifjar Reynir upp þegar hann var á togara um jól og segir hann að þessir dagar hafi bæði verið undarlegir og óraunverulegir.  Gefur Reynir þar innsýn inn í hvernig það er fyrir sjómenn að vera fjarri fjölskyldum sínum þessa hátíðardaga. Reynir segir:

„Eina tilbreytingin var sú að veiðarfærin voru ekki í sjó um sexleytið þegar jólin voru hringd inn í landi. Á Halamiðum var engin jól að sjá, aðeins glottandi máni sem gægðist á milli skýja. Inni í borðsal sat öll áhöfnin og raðaði í sig hamborgarhrygg og tilheyrandi. Gárungi af stýrimannsvaktinni sprengdi kínverja undir veisluborðinu þar sem döpur áhöfn í hafsauga var á valdi minninga um liðin jól og félaga sem var fallinn frá. Bátsmaðurinn fékk áfall við sprenginguna og var í koju næstu sólarhringana.“

Nú eru svo runnin upp önnur jól hans á lífsleiðinni þar sem hann verður fjarri fjölskyldu sinni.   

„Að þessu sinni er það þó ekki togari. Það verður heldur ekkert stress en það varður bæði notið og þotið. En, eins og á sjónum í gamla daga, verða engin spariföt.“

Þá segir Reynir einnig að fæstir hlusti á þau ráð að njóta jólanna.

„Helsta klisja fjölmiðla á aðventu er að fólk eigi að staldra við og njóta í stað þess að þeytast um í leit að jólaandanum. Fæstir hlusta á hollráðasíbyljuna.“