Nóg var um að vera hjá lögreglunni í gærkvöldi við að stöðva ökumenn sem ekki hafa leyfi til aksturs en ökumaður sem lögreglan þurfti að hafa afskipti af tvisvar sinnum í gærkvöldi reyndi í bæði skiptin að villa á sér heimildir.
Lögreglan stöðvaði bifreið hans fyrst um hálf átta leitið í gærkvöldi á Höfðabakka og aðspurður gaf hann upp rangt nafn. Síðar um kvöldið eða klukkan rúmlega tíu í gærkvöldi stöðvaði lögreglan manninn aftur og endurtók sagan sig. Maðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna ásamt ítrekuðum afskiptum lögreglunnar þar sem hann er sviptur ökuréttindum.
Þá stöðvaði lögreglan einnig ökumann á Miklubraut í gærkvöldi eftir að hann hafði ekið á strætórein, í ljós kom að ökumaðurinn hefur aldrei öðlast ökuréttindi og hefur hann ítrekað verið stöðvaður við akstur án réttinda.
Rúmlega átta í gærkvöldi stöðvaði lögreglan svo bifreið í Breiðholtinu sem reyndist vera ótryggð og voru skráningarnúmerin klippt af. Ökumaðurinn hefur ítrekað verið stöðvaður vegna aksturs á ótryggum bifreiðum sem hann er skráður fyrir.
Á miðnætti stöðvaði lögreglan bifreið á Breiðholtsbraut og er ökumaðurinn grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna ásamt því að aka ítrekað sviptur ökuréttindum og vörslu fíkniefna.