Hrund Rúdolfsdóttir, forstjóri Veritast lyfjasamsteypunnar segir í viðtali á Hringbraut í kvöld að það sé óásættanlegt að enn séu til fyrirtæki sem fari ekki að lögum um að hafa að minnsta kosti 40 prósent af hvoru kyni í stjórn. Lög um það voru sett árið 2010 og tóku gildi 2013. Verandi eina konan í stjórn fyrirtækis á stundum segir Hrund að hafi verið erfitt. Reynsla Hrundar er orðin mikil af stjórnarsetum en þegar hún lítur til baka segir hún að þegar hún var eina konan í stjórn hafi hún bara \"reynt að lifa af\", til að byrja með alla vega og setja sig í sömu stellingar og karlarnir til að standa ekki út úr og vera of öðruvísi. Hinn \"krítíski massi\" kvenna í stjórnum er nauðsynlegur segir Hrund. Það er, að hafa alla vega tvær til þrjár konur í stjórn svo þær geti vegið upp á móti körlunum þar sem kynin eru klárlega ólík í viðhorfum og nálgun þeirra ólík til margra mála. Það sé sláandi að í nýlegum könnunum sjái fjöldi karla ekki tilganginn með því að hafa blandaðar stjórnir þótt þeir telji karla og konur jafn hæfa stjórnarmenn.
Reyndi að vera eins og karlarnir
Fleiri fréttir
Nýjast