Reyndi að tæla unga stúlku upp í bíl - sagði að móðir hennar væri slösuð

Í gærkvöldi reyndi karlmaður að tæla unga stúlku upp í bifreið sína í Reykjanesbæ. Hann sagði henni að móðir hennar væri slösuð eftir umferðarslys og hún þyrfti að koma með honum upp í bifreiðina. Að sögn lögreglu brást stúlkan hárrétt við með því að hlaupa í burtu og rakleiðis heim þar sem hún lét vita um atvikið. Leit lögreglu að manninum og bifreiðinni hefur ekki borið árangur, en skráningarnúmerið bifreiðarinnar náðist ekki. Lögreglan á Suðurnesjum biður foreldra að brýna fyrir börnum sínum að fara ekki upp í bifreiðar með ókunnugum og tilkynna strax um atvik sem þetta.