„Í gærkvöldi var dóttir mín á fimleikaæfingu frá fimm til hálf sjö. Þegar æfingin kláraðist hleypur hún út og að bílaplaninu að leita af mér því ég átti að sækja hana. Ég komst ekki og bað því foreldri vinkonu hennar um að gefa henni far heim.“
Segir Sólveig Ýr Sigurjónsdóttir er hún greinir frá hræðilegu atviki sem dóttir hennar varð fyrir í gærkvöldi.
Í samtali við Hringbraut segist Sólveig vona að með því að segja frá þá opnist augu fólks.
„Á meðan hún er úti að leita af mér var dökkur bíll lagður við hringtorgið hjá Sunnulækjaskóla, þar sem myndavélar ná ekki til. Það er greinilegt að manneskjan vissi nákvæmlega hvað hún/hann var að gera. Þar er kallað á hana: „Komdu, komdu.“ Hún bakkar aðeins til þess að sjá hvaða bíll þetta var eða hver væri inni í honum en þá lokar viðkomandi rúðunni. Hún heldur áfram og heyrðu ákaft aftur: „Komdu nú, komdu.“ Hún bakkar aftur til þess að vera viss og þá lokaðist rúðan aftur,“ segir Sólveig.
Dóttir hennar verður hrædd og hleypur af stað aftur inn í íþróttahús grátandi og þar bíður vinkona hennar eftir henni og tilkynnir henni að hún fái far með sér heim.
Ekki eina stúlkan sem sagði frá
„Þær fóru saman út og þá var bíllinn enn þá lagður þar en ekki í gangi. Eftir þetta kemur hún ofsahrædd heim og segir mér þetta. Segir að hún þori ekki aftur út og skilji ekki af hverju fólk gerir svona,“ segir Sólveig.
Sólveig er í sambúð með Reyni Bergmann samfélagsmiðlastjörnu sem fær skilaboð frá föður annarar stúlku sem æfir með dóttur þeirra.
„Þá hafði hún einnig lent í þess og tilkynnt pabba sínum það að Victoría [innsk.blm. dóttir þeirra] hefði líka lent í þessu. Þetta er hreint skelfilegt, ég fékk bara fyrir hjartað og búin að vera mjög lítil í mér. Ég lokaði mínum opna samfélagsmiðli því nú er ég hrædd um að það sé verið að fylgjast of mikið með börnunum mínum þar. Á sama tíma er ég ótrúlega stolt og þakklát fyrir að hafa kennt börnunum mínum að tala ekki við ókunnugt fólk né hoppa upp í bíl hjá neinum sem þau þekkja ekki sama hvað hver segir. Veit ekki hvað yrði um hana ef hún hefði sest inn í bílinn eða hvort ég fengi hana aftur til mín,“ segir Sólveig sem viðurkennir að vera með tárin í augunum eftir atvikið.
„Ég bið alla foreldra um að tala við börnin sín um þetta aftur og aftur. Ef það er einhver sem sótti barnið sitt í gærkvöldi um 18:30 leitið og sá dökkan bíl sem var lagðir við hringtorgið nálægt ruslinu við Sunnulækjarskóla og man eftir því má endilega láta mig eða lögguna vita. Ég er svo hrædd um að þessi náungi gangi laus og hugi að öðru plani fyrst að þetta komst upp.“