Meðalnotkun einstaklinga á höfuðborgarsvæðinu er um 200 L á degi hverjum því við notum jú vatn til að drekka, fara í bað, vaska upp, bursta tennur, þvo okkur og svo mætti áfram telja. Þetta er eitt af mörgu fróðlegu sem kemur fram í þættinum Atvinnulífið sem verður á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld en þá heimsækja Sigurður K. Kolbeinsson þáttastjórnandi og Friðþjófur Helgason kvikmyndatökumaður Veitur ohf. Fyrirtækið er eitt þriggja fyrirtækja sem rekið er af eigandanum Orkuveitu Reykjavíkur en hin eru Gagnvaveitan og Orka náttúrunnar. Í þættinum í kvöld verður rætt við framkvæmdastjóra Veitna, Ingu Dóru Hrólfsdóttur auk nokkurra sérfræðinga á sviði vatnsveitu, þjónustumála og umhverfismála. Þetta er fyrri þáttur af tveimur en í næsta þætti að viku liðinni verður fjallað um framkvæmdir á vegum Veitna auk starfsemi hitiaveitu, fráveitu og rafmagnsveitu.
Borgarbúar: 200 l af vatni daglega
Fleiri fréttir
Nýjast