Múslimar á Íslandi og Krabbameinsfélag Íslands undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu um heilsueflingu í tengslum við Ramadan, sem nú stendur yfir, að því er fram kemur í tilkynningu frá félögunum í dag.
Félag múslima á Íslandi skuldbindur sig í samkomulaginu til að stuðla að vitundarvakningu til félagsmanna sinna um að hætta að reykja og Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning til þeirra sem ákveða að hætta tóbaksnotkun. Auk þess er vakin athygli á skimun fyrir krabbameinum í brjóstum og leghálsi á Leitarstöð Krabbameinsfélagsins.
Í Ramadanmánuði fasta múslimar daglega frá sólarupprás til sólseturs. Auk þess að fasta leggja múslimar meira á sig við að fylgja kenningum íslam í mánuðinum og taka afstöðu gegn ofbeldi, reiði, öfund, losta og illu umtali. Fastan er því sögð hreinsa bæði líkama og huga. Í ár endar Ramadan fimmtudaginn 14. júní.
„Ramadanmánuður er kjörið tækifæri fyrir múslima til að gera breytingar í átt til betri heilsu. En það getur verið heilmikið átak að fara í gegnum föstuna sjálfa. Þess vegna leggjum við til að í Ramadan vinni þeir sem reykja að því að undirbúa það að hætta alveg að föstu lokinni,” segir Ásgeir R. Helgason, fræðslufulltrúi Krabbameinsfélagsins. Ásgeir vann einnig að sams konar samkomulagi í Svíþjóð fyrir hönd Karolínska sjúkrahússins.