Bubbi Morthens hefur tjáð sig um úrslit Söngvakeppninnar sem fram fór um helgina. Í færslu sem hann birti á Twitter sagði hann að það hafi glatt hann mikið að Sigríður, Elísabet og Elín Eyþórsdætur hafi unnið keppnina með framlagi sínu Turn This Around.
Systurnar kepptu í úrslitaeinvígi við Reykjavíkurdætur, og höfðu betur í símakosningu. Bubbi segir að það sem hafi skilið á milli laganna tveggja hafi verið hógværð, tónlistargáfa og geta þeirra, þó að Reykjavíkudætur séu „töff kúl og allt það“.
„Mikið gladdi það mig lagið sem komst áfram og þar held ég að þær systur með hógværð sinni og tónlistargáfu og getu hafi sínt hjartað getur ekki logið sama hvað Reykjavíkudætur eru töff kúl og allt það en það vantaði samt þetta sem skildi á milli þessara 2 laga.“ skrifaði Bubbi á Twitter.
Ummæli hans hafa vakið athygli meðal annars hjá Reykjavíkurdætrum sem hafa svarað honum fullum hálsi. Þuríður Blær Jóhannsdóttir sagði til að mynda að hún virðist hafa misskilið Bubba í gegn um tíðina sé hans skoðun sú að karlar megi hafa hátt, en konur eigi að sýna ,,hógværð”.
„Ég dýrka þig Bubbi og það sem þú hefur staðið fyrir í gegnum tíðina, en ef þér finnst að karlar megi hafa hátt og konur ættu að sýna ,,hógværð”, þá hef ég misskilið þig hrapallega.“
Ég dýrka þig Bubbi og það sem þú hefur staðið fyrir í gegnum tíðina, en ef þér finnst að karlar megi hafa hátt og konur ættu að sýna ,,hógværð”, þá hef ég misskilið þig hrapallega
— Þuríður Blær Jóhannsdóttir (@thuridurblaer) March 14, 2022
Önnur Reykjavíkurdóttir, Steinunn Jónsdóttir, sagði að atriðin væru mjög ólík, en þau hefðu bæði verið flutt af hógværð og ástríðu. „Við settum allt okkar hjarta í okkar flutning líka og komum fram við alla af hógværð og virðingu. Bara mjög ólík atriði og lög sem eiga það sameiginlegt að vera samin og flutt af ástríðu af flytjendum sem eru búnir að ganga í gegnum mikið saman. Krabbar í körfu er tímaskekkja.“