Reykjavíkurborg án samfélagsvitundar?

Fyrrum þingmaður, Þór Saari, gagnrýnir harkalega að flytja eigi inn Litháa í stórum stíl til að keyra hjá Strætó. Þeir koma á vegum starfsmannaleigu í vikunni og eru 25 talsins.
\"Þegar hið opinbera, í þessu tilfelli Reykjavíkurborg, er orðinn beinn þátttakandi í að halda launum undir fátæktarmörkum með innflutningi á ódýru vinnuafli, hvað er þá eftir af samfélagsvitundinni. Meirihluti borgarstjórnar sem stendur að þessu er skipaður fulltrúum Samfylkingar, Vinstri-grænna, Bjartrar framtíðar og Pírata. Þetta eru flokkarnir sem vilja mynda bandalag gegn meirihlutanum í landsstjórninni. Til hvers yrði það spyr ég nú bara? Einhver svör Halldór Auðar Svansson, Líf Magneudóttir, Magnús Orri Schram?\" spyr Þór á facebook og brýnir borgarfulltrúa til svara.

Í frétt mbl.is um málið kemur fram að þetta  ségert til að bregðast við skorti á meira­prófs­bíl­stjór­um, en flest­ir sem hafi slíkt próf séu að vinna við ferðaþjón­ustu.

Halldór Auðar Svansson segir fyrir hönd Pírata: \" Hér mætti nú byrja á að kanna þá forsendu að launum sé haldið \undir fátæktarmörkum\' með \'innflutningi á ódýru vinnuafli\'.\" \"Það væri sennilegast hægðarleikur að grennslast fyrir um á hvaða launum þessir starfsmenn eru og mun ég gera það á morgun ef þú nennir því ekki sjálfur. Uppgefin ástæða þessa ráðahags er skortur á innlendu vinnuafli þar sem það er mikil ásókn í að keyra með túrista. Það er bransi sem borgar betur en Strætó en aftur segi ég að ekkert bendir enn til þess að Strætó borgi þessu erlenda vinnuafli einhver lúsarlaun.\"

Þá bendir Halldór á að Strætó B.S. sé rekið af fleiri sveitarfélögum en Reykjavíkurborg. \"Núverandi stjórnarformaður er til dæmis úr Mosfellsbæ. Mannski lítið atriði í samhenginu en það er frekar böggandi að Reykjavíkurborg er stöðugt ein gerð ábyrgð fyrir þessu rekstri þegar staðreyndin er aðeins önnur. Ég nota hvert tækifæri til að árétta þetta.\"

'