Reykjavíkurborg í skammarkróknum

Í fréttaskýringaþættinum 30 mínútum, sem var á dagskrá Hringbrautar í gærkvöld, kom fram að sveitarfélög hafa undanþágu sem heimilar þeim að óska ekki eftir útboðum vegna kaupa á vörum og þjónustu einsog stofnanir ríkisins verða að gera.

Þessu stendur til að breyta. Eins kom fram að Reykjavíkurborg hefur oftsinnis verið kærð til úrskurðarnefndar útboðsmála. Þrátt fyrir undanþágur tekst borginni samt að vera meðal þeirra stofnanna sem mest eru kærðar.

Halldór Halldórsson, sem er bæði oddviti minnihlutans í borginni og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga mætir á Hringbraut í kvöld til að ræða þessi mál.