Á aðeins fimm árum hefur Reykjavíkurborg keypt þjónustu án rammasamninga og fárra útboða fyrir sjö milljarða króna. Þetta kemur fram í þættinum 21, sem sýndur er hér Hringbraut klukkan 21:00 í kvöld. Borgin hefði getað sparað sér 1,5 milljarð hefðu rammasamningar verið virkir. Farið verður ítarlega í saumana á á málinu í þætti kvöldsins með borgarfulltrúum Pírata og Samfylkingarinnar.
Samkvæmt skýrslu sem Innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar gaf út í mars, vegna verklegra framkvæmda og innkaupamála Reykjavíkurborgar, hefur í fimm ár ekki verið nýttir rammasamningar vegna kaupa borgarinnar á þjónustu frá verkfræðistofum og arkitektastofum. Á þessum árum hefur borgin keypt þjónustu í þessum málaflokki fyrir rúma sjö milljarða króna. Eingöngu mjög lítill hluti af þessari upphæð fór í útboð.
Samkvæmt skýrslunni segir Innri endurskoðandi að hefði Reykjavíkurborg getað sparað sér allt að 22% með gerð rammasamninga þegar kemur að kaupum á þessari þjónustu. Hefði rammasamningar verið virkir á þessu tímabili hefði Reykjavíkurborg því getað sparað sér allt að 1,5 milljarða króna við kaup á þessari þjónustu.
Í þættinum í kvöld ræðir Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson við Sigurborgu Ósk Haraldsdóttur, borgarfulltrúa Pírata og formann umhverfis og skipulagsráðs, ásamt Sabine Leskopf, borgarfulltrúa Samfylkingarnar og formann innkauparáðs.
Þá verður ítarlega fjallað um málið á Hringbraut.is á næstu dögum.