Reykjavíkurborg fær yfir 400 milljónir til að rannsaka populisma í evrópu

Reykjavíkurborg ásamt samstarfsaðilum hlaut nýlega rúmlega 400 milljóna króna styrk til þriggja ára úr Horizon 2020 rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB. Styrkurinn er veittur til verkefnisins PaCE (Populism and Civic Engagement) sem miðar að því að greina tegundir og forsendur populisma og hvernig bæta megi gæði og framkvæmd lýðræðis til að sporna við uppgangi populisma í Evrópu. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Verkefninu var hleypt af stokkunum í febrúar og er samstarfsverkefni níu evrópskra stofnana og fyrirtækja. Samstarfsaðilar eru Manchester Metropolitan University, Technische Universitat Dresden, Paris Lodron Universtitat Salzburg, Centre for Liberal Strategies Foundation í Búlgaríu, Trilateral Research á Írlandi, Íbúar ses og The Democratic Society í Brussel. 

Þá segir um verkefnið:

„Um alla Evrópu hafa sprottið upp pólitískar hreyfingar sem gagnrýna frjálslynt lýðræði og fjölmenningu og mála svarta mynd af slíkri samfélagsgerð og kalla hana gæluverkefni forréttindahópa sem gangi ekki raunverulegra hagsmuna almennra borgara  Slíkar hreyfingar eru af ýmsum toga og sumar þeirra endurspegla lögmætar áhyggjur almennings af auknum ójöfnuði og áskorunum sem tengjast  innflytjendamálum. Aðrar hreyfingar eru skaðlegri og ala á tortryggni að því er virðist með það eitt að markmiði að sundra einingu og samkennd samfélaga. Áhrifa þessa gætir í Bretlandi og í Bandaríkjunum en einnig í Tyrklandi, Ungverjalandi, Póllandi og víðar.“

Á Íslandi varð til fjöldahreyfing  (búsáhaldabyltingin) sem bar sum einkenni populisma en sem Íslendingar virkjuðu sem verkfæri til stjórnarskipta í átt að meiri frjálsræði, betra lýðræði, breytingum á stjórnarskrá og væntum ábyrgðum stjórnmálastéttar.

PaCE verkefnið miðar að því að sporna gegn neikvæðum birtingarmyndum og áhrifum populisma, byggja á því sem læra má af jákvæðum dæmum og með því taka þátt í að byggja upp sterkari lýðræðislegan grundvöll fyrir borgara og stofnanir Evrópu. PaCE mun greina tegund, vöxt og afleiðingar evrópskra populistahreyfinga, bakgrunn þeirra, einkenni og samhengi og tengdar áskoranir við frjálslynt lýðræði í Evrópu. Þá mun PaCE þróa verkfæri og leiðir til að mæta áskorunum og gagnrýni á grundvelli samráðs, skilnings, rökræðu og gagnrýnnar hugsunar.

Dr. Magnús Yngvi Jósefsson og Dr. Roxana Elena Cziker sem bæði starfa á skrifstofu þjónustu og reksturs Reykjavíkurborgar leiða verkefnið fyrir hönd Reykjavíkur.