Reykj­­a­v­ík­­ur­­borg aug­­lýs­­ir Hafn­­ar­­torg á Fac­­e­­bo­­ok grúpp­­um: „Afar kuld­a­­legt og al­­gjört rok­r­ass­g­at“

At­hygli hefur vakið að Reykja­víkur­borg hefur deilt færslu um á­gæti Hafnar­torgs á nokkrar í­búa­grúppur á Face­book.

Í færslunni má sjá myndir af Hafnar­torgi frá því áður en ný­byggingarnar sem hýsa meðal annars verslanir H&M og skrif­stofu Hring­brautar voru reistar og svo nýjar myndar af nú­verandi götu­mynd. Skiptar skoðanir eru um á­gæti þessara bygginga og hafa ýmsir máls­metandi aðilar í þjóð­fé­laginu tjáð sig um málið, þar á meðal dag­skrár­gerðar­maðurinn Egill Helga­son sem skrifar:

„Glötuð tæki­færi til að gera eitt­hvað fal­legt og skemmti­legt – í sátt við byggðina.“

Al­manna­tengillinn Andrés Jóns­son tekur þó í and­stæðan streng og segist vera mjög á­nægður með fram­kvæmdirnar á Hafnar­torgi:

„Stór­felldar fram­farir. Höfnin verður bráðum aftur ein­kennis­merki Reykja­víkur og Kvosin aaðal­svæðið.“

Kulda­legt rok­rass­gat

„Mér finnst furðu­legt að skyggja svona á sjóinn...þetta er svo lítil borg st­útt full af sjarma, hefði viljað sjá torg sem höndlar rok, sem skyggir ekki á aðra bygð og höfðar til “litlu” búðirnar,“ segir Gígja Sara Björns­son, eig­andi Katta­kaffi­hússins og bætir við að hún hefði frekar viljað sjá hús­næði sem væri auð­velt að leigja út til kaffi­húsa, veitinga­staða og lítilla verslana.

„Það hefði að mínu mati gert þetta mun huggu­legra oh meira “ís­lenskt” torg. Núna finnst mér þetta afar kulda­legt og al­gjört rok­rass­gat en svo aðal­ega væri svo gaman að hafa meira líf og meiri at­vinnu­mögu­leika,“ segir Gíga Sara.

Færslunni hefur verið deilt í að minnsta kosti þrjár í­búa­grúppur á Face­book, Í­búar í Grafar­vogi, Vestur­bæinn og Lang­holts­hverfi – 104, og hafa sumir sett spurninga­merki við það að Reyka­víkur­borg sé að seilast inn á slíkar grúppur til að stæra sig af eigin af­rekum

Björn Teits­son, upp­lýsinga­full­trúi Krabba­meins­fé­lagsins og borgar­skipu­lags­fræðingur, skrifar til að mynda:

„Frekar lé­legur lestur á salnum að monta sig af þessu akkúrat núna.“

Mynd/Skjáskot