Enn er það svo að sumu fólki finnst jólin ekki ná fullum hátíðleika nema jólasnjór fylgi gleðinni.
Danska stöðin TV2 gerir úttekt á þessu og slær upp að aðeins ein evrópsk höfuðborg hafi notið hvítra jóla þetta árið, sjálf fröken Reykjavík.
Í Danmörku voru jólin rök, græn og hlý skv. frétt TV2. Þarlendu fréttafólki þykir áhugavert Osló, Stokkhólmur og Helsinki falla í sama flokk, rauð jól eins og við Íslendingar myndum kalla það en græn jól samkvæmt tungutaki Dana.
Meira að segja Moskva var laus við snjóinn hátíðlega um jólin, sól og 4-5 stiga hiti var í hinni rauðu borg sem skartaði rauðum jólum, sem þykir víst harla óvenjulegt þar eystra á þessum árstíma.
„Í raun er aðeins ein evrópsk höfuðborg sem skartar hvítum jólum, það er Reykjavík á Íslandi,“ segir TV2.