Dagurinn í dag er sögulegur í Reykjavík, altént hvað götuheiti borgarinnar varðar, en gatan Bratthöfði austan við Elliðaárnar verður endurskírð síðdegis og mun hér eftir heita Svarthöfði.
Unnendur Star Wars þáttanna og bíómyndanna geta þar með tekið gleði sína svo um munar, enda Svarthöfði ein helsta persóna þessa framtíðarreyfara sem á sér fleiri fylgjendur og unnendur um heim allan en vel flestar aðrar sögur.
Það verða þeir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík og Óli Gneisti Sóleyjarson, þjóðfræðingur sem setja upp skiltið Svarthöfða við samnefnda götu klukkan 15:30 í dag, en Óli Gneisti setti hugmyndina að kenna götu við persónu úr Star Wars á hugmyndavefinn Betri Reykjavík og hlaut hún mikið fylgi.
Vegmerkingin verður sett upp þar sem Svarthöfði mætir Stórhöfða.
Tímasetning atburðarins er engin tilviljun, en sjöunda Stjörnustríðsmyndin, The Force Awakens eða Mátturinn rumskar, var frumsýnd hér á landi laust eftir miðnætti í gærkvöld. Langar biðraðir mynduðust í kvikmyndahúsum landsins og sumir bíógesta höfðu meira að segja klætt sig upp sem þekktar fígúrur úr kvikmyndunum.