Umræða fer nú fram utan landsteinanna hvort reykingamenn ættu að fá fríar rafsígarettur til að lækka kostnað heilbrigðiskerfisins af áhrifum tóbaksnotkunar og bjarga heilsu fjölmargra í leiðinni.
Royal College of Physicians, Konungleg samtök breskra lækna, segja rafsígarettur mun heilsusamlegri en venjulegar. Rafretturnar hjálpi reykingamönnum við að hætta að reykja.
Í viðamikilli nýrri skýrslu samtakanna segir að mögulega gæti það að reykja rafrettur bætt líf milljóna og lækkað kostnað. Rætt er um hvort rafrettur verði skráðar sem hjálpartæki við að hætta að reykja.
Ekki hefur farið fram umræða um þetta hér á landi en rafrettur njóta vaxandi vinsælda hér sem í öðrum löndum.
Árið 2013 reyktu 11,4% Íslendinga og hefur neysla dregist saman síðari ár.