Eins og Hringbraut greindi frá fyrr í morgun fóru jólapakkar sem áttu að fara með Landflutningum í bæ skammt frá Reykholti í Borgarfirði vegna mistaka á Reyðarfjörð.
Um gjafir frá ömmu til barnabarna sinna er að ræða og var óvíst hvort jólagjafirnar muni skila sér á réttum tíma.
Kona hafði samband við Hringbraut og lét vita af þessu og var harla ósátt. Hún hefur nú aftur haft samband og rómar viðbrögð Landsflutninga í hvívetna eftir að mistökin urðu ljós.
Landflutningar hafa ákveðið að flogið verði með jólapakkana frá Egilsstöðum til Reykjavíkur og þaðan verða gerðar ráðstafanir til að flytja jólapakkana heim til barnanna. Segir konan að þetta sé henni og fjölskyldunni ómetanlegt.
Allir geti gert mistök en fyrirtæki verði dæmd af því hvernig þau bregðist við þeim.
Liggur því fyrir að litla jólapakkasagan fær farsælan endi.