Hreppsnefnd Reykhólahrepps ákvað á fundi síðdegis að setja umdeilda veglínu Vestfjarðavegs um Teigsskóg inn á aðalskipulag sveitarfélagsins. Hreppsnefndin hafnaði öðrum valkosti vegarins sem var að gera jarðgöng undir Hjallaháls samhliða nýjum vegi um Ódrjúgsháls.
Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2.
Hreppsnefndin telur ljóst að þó leið um Teigsskóg muni hafa umtalsverð neikvæði umhverfisáhrif muni vegurinn hafa jákvæð samfélagsáhrif og bæti samgöngur og umferðaröryggi. Auk þess er hún um sex milljörðum króna ódýrari en hin leiðin og framkvæmdahraði væntanlega meiri. Veglínan sem hreppurinn ákvað er merk Þ-H á kortinu, sem er frá Vegagerðinni. Vegagerðin hafði líka lagt þá línu til, en hún er umdeild vegna neikvæðra áhrifa á skóginn.