Heimildarmynd um aflraunamanninn Reyni Örn Leósson, eða Reyni sterka vann Edduverðlaunin fyrir bestu heimildarmyndina. Hann var ungur að aldri þegar tók að bera á miklum kröftum hans og ferðaðist hann upp frá því víða og sýndi aflraunir. Hann þótti hafa yfirnáttúrulega hæfileika og á mörg heimsmet í heimi aflrauna sem standa enn í dag. Erfið æska setti þó svip sinn á líf hans, en hann var alla tíð utangarðsmaður í leit að viðurkenningu frá samfélaginu. Leikstjóri: Baldvin Z. Framleiðsla: Glassriver.
Reynir sterki er heimildarmynd ársins
Fleiri fréttir
Nýjast