Fótboltamenn rétthærri en verkafólk!

Logi Már Einarsson, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Akureyrar, hefur lagst í rannsóknir á ólíku hlutskipti mismunandi stétta þegar kemur að dvöl á Íslandi.

Hann birtir niðurstöður sínar á eigin fésbókarsíðu og rekur þar að verkamaður geti fengið dvalarleyfi til að vinna á Íslandi í eitt ár, ef skortur er á vinnuafli. Hann geti fengið leyfið endurnýjað einu sinni. Eftir tvö ár hérlendis þurfi verkamaðurinn svo að snúa aftur heim í tvö ár áður en hann megi koma aftur. Hann fái ekki rétt til búsetuleyfis og megi ekki taka fjölskylduna með.

Verkamaðurinn situr ekki við ama borð og t.d. fótboltamenn og skurðlæknar samkvæmt samantekt Loga Más. Þannig rekur bæjarfulltrúinn að fótboltamaður og skurðlæknir geti fengið dvalarleyfi til að vinna á Íslandi í eitt ár, og svo endurnýjað í tvö ár í senn eins oft og þeir vilji. Báðir megi taka fjölskylduna með. Að auki geti skurðlæknirinn eftir fjögur ár hérlendis fengið búsetuleyfi sem sé þá ótímabundið. 
„Jæja þingmenn, er ekki rétt að laga þessa mismunun!“ Spyr Logi, fyrrum varaþingmaður Samfylkingarinnar og núverandi bæjarfulltrúi í meirihluta bæjarstjórnar.

Nokkur viðbrögð hafa orðið við færslu Loga Más og kemur sú skoðun ítrekað fram í ummælum að þessi mismunun sé ekkert annað en mannvonska.