Réttum þjóða mest úr kútnum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra lagði áherslu á það í stefnuræðu sinni á Alþingi í gærkvöld að efnahagshorfur hér á landi væru með þeim þeim bestu sem þekktist í Evrópu og þó víðar væri leitað.

Hann sagði við setningu 145. löggjafarþings þjóðarinnar að staða Íslands hefði styrkst til muna, en hún einkennist núna af stöðugleika með lágri verðbólgu, litlu atvinnuleysi, auknum kaupmætti, lækkun skulda og hallalausum ríkisrekstri.

Ráðherra bar höfuðið hátt: \"Fá dæmi eru um að lönd hafi náð sér jafnhratt á strik efnahagslega og Ísland á síðustu tveimur árum. Það hefur gerst á sama tíma og nágrannaþjóðirnar, í viðskiptalöndum okkar, glíma áfram við miklar efnahagsþrengingar sem ekki sér fyrir endann á. Efnahagslega hefur Ísland vaxið einna hraðast Evrópuþjóða frá 2013. Kaupmáttur launa hefur vaxið um 10% frá því að ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks tók við. Þetta er einstakur árangur í alþjóðlegum samanburði,“ sagði forsætisráðherra í ræðu sinni og benti á að jafnvel þótt íslenska ríkið væri rekið með afgangi myndi ríkisstjórnin auka framlög til allra mikilvægustu málaflokkanna, svo sem nýframkomin fjárlög sýndu: Í stað þesws að ýta vandanum á undan okkur og leggja auknar byrðar á framtíðarkynslóðir erum við að búa í haginn fyrir framtíðina.\"

Forsætisráðherra sagði að stærstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafi allar miðað að því að rétta stöðu heimilanna og bæta kjör fólks: \"Fjárlagafrumvarpið er mikilvægur liður í framhaldi þeirrar vinnu. Með því er ráðist í verulegar breytingar á skattlagningu og gjaldtöku ríkisins með það að markmiði að styrkja heimilisbókhald fólks með millitekjur og lægri tekjur.“

Hann var ánægður með framlag stjórnvalda til húsnæðismála, áform um uppbyggingu félagslegra íbúða væru að ganga eftir: \"Með nýju íbúðunum verður einkum komið til móts við fólk í lægstu tveimur tekjufimmtungum. Þannig verður tekjulágum fjölskyldum veittur aðgangur að ódýru og öruggu leiguhúsnæði. Einnig er unnið að nýju húsnæðisbótakerfi sem felur í sér verulega aukinn stuðning við leigjendur,“ sagði Sigmundur Davíð.

Ráðherrann ræddi flóttamannavandann og hlutverk Íslendinga til að leysa hann, en þar hefðu landsmenn skyldum að gegna: \"Við höfum að undanförnu fylgst náið með fréttum af atburðum sem minna okkur á hve þakklát við getum verið fyrir það líf sem okkar góða land og friðsama samfélag hefur búið okkur, svo langt frá heimsins vígaslóð. Þessar  aðstæður setja á herðar okkar skyldu til að koma þeim sem í neyð eru staddir til hjálpar á þann hátt sem við best getum,“ sagði forsætisráðherra, og vísaði til umfangsmikinn vanda flóttamanna, ekki síst frá Sýrlandi, Írak og Afganistan, sem að undanförnu hafa leitað skjóls í Evrópuríkjum.

Í þessum efnum kvað hann úrlausnarefnið gríðarlega umfangsmikið; reynt yrði að vanda eins mikið til verka eins kostur væri: \"Íslensk stjórnvöld telja feykilega mikilvægt að við og aðrar þjóðir bregðumst eins vel við þessum vanda og kostur er. Úrlausnarefnið er gríðarlega umfangsmikið. Við munum þurfa að auka framlög til málaflokksins umtalsvert og aðlaga undirbúningsvinnu þróuninni að undanförnu. Við erum eflaust öll sammála um að við eigum að leggja áherslu á að nýta möguleika okkar til að framkvæma sem best skyldu okkar og vilja til að aðstoða fólk í neyð eftir bestu getu,“ sagði Sigmundur Davíð meðal annars í stefnuræðu sinni á Alþingi í gærkvöld.