Ársskýrsla Stígamóta fyrir árið 2018 var birt í vikunni. Stígamót voru stofnuð árið 1990 og hafa tekið yfir 55 þúsund viðtöl á þeim tíma. 8.500 hafa þegið hjálp á sama tímabili. Guðrún Jónsdóttir, sem fagnar 20 ára starfsafmæli sem talskona samtakanna um mánaðamótin, er gestur Sigmundar Ernis í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þar ræðir hún skýrsluna og kynferðisofbeldi hér á landi almennt.
Fleiri mál, 784 talsins, hafa ekki komið inn á borð Stígamóta síðan árið 1992. Guðrún telur það vera vegna vitundarvakningar. „Ég held að það hafi orðið bylgja af vakningu og umræðu. Við vorum sjálf með gríðar mikið átak 2016, þá varð sprenging hjá okkur. Síðan höfum við sett í gang forvarnarverkefnið „Sjúk ást,“ það hefur líka skilað. Alltaf þegar við erum með fræðslu í fjölmiðlum þá eykst aðsókn.“
Hún telur ekki meira ofbeldi hér á landi en annars staðar. „Ég held að þegar við berum okkur saman við nágrannalöndin, kannski af því að við búum í minna og viðráðanlegra samfélagi, að þá sé vitundarvakningin meiri hér og aðsóknin meiri. Ég held að það sé af því að fólk veit af Stígamótum t.d., það vita allir um okkur. Ég held að það sé ekki endilega meira ofbeldi hér heldur en annars staðar, en meiri vitund og meiri umræða.“
Aðspurð um hvort brotum vegna kynferðisofbeldis sé tekið nógu alvarlega hér á landi segir Guðrún: „Það sem alltaf æpir á mig er að réttarkerfið virkar ekki í þessum málum, af því það er búið til af körlum fyrir karla, fyrir allt önnur mál en þessi. Af því þetta eru erfiðustu mál í heimi, þar sem er orð á móti orði og sönnunarbyrðin gífurlega ströng. Hún þarf auðvitað að vera það, en það blandast líka inn í vanþekking og fordómar hjá þeim sem vinna í þessu kerfi, sem hægt er að breyta.“
Guðrún segir þó alltaf þokast í baráttunni og fagnar í því samhengi fullgildingu Istanbúl sáttmálans. „Nú erum við búin að fullgilda hinn svokallaða Istanbúl sáttmála Evrópuráðsins um ofbeldi gegn konum, sem leggur okkur þær skyldur á herðar að bregðast við, koma í veg fyrir ofbeldi, dæma þá sem beita því o.s.frv., þannig að allt í einu erum við komin með í hendurnar verkfæri þannig að við getum sagt við stjórnvöld: „Hey! Þið eruð búin að skuldbinda ykkur til að gera þetta og hitt,“ þannig að við höfum svona meiri tök á þeim.“
Nánar er rætt við Guðrúnu í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.