Gísli Tryggvason lögmaður segir það skýrt lögbrot ef atvinnurekendur segi starfsfólki sínu upp vegna stjórnmálaskoðana eða láti starfsmenn að einhverju leyti gjalda fyrir þær.
Þetta hafi verið fest í lög árið 1938.
Margir hafa á samfélagsmiðlum síðustu daga deilt fréttum eftir að formaður verkstjóra steig fram í Fréttablaðinu og sakaði útgerðarmenn um ægivöld. Hann sagði komna fram nýja gerð af stjórnmálamönnum sem hikaði ekki við hótanir og uppsagnir á grunni skoðana sjómanna. Jafnvel væru brögð að því að slíkir menn hlytu bannfæringu innan greinarinnar og fengju hvergi vinnu ef kastast hefði í kekki milli þeirra og áhrifraríkra útgerðarmanna.
Á eigin fésbókarsíðu segist lögmaðurinn Gísli Tryggvason hafa rætt við skjólstæðing sem hafi nefnt í framhjáhlaupi að þeir sem hefðu \rangar\' skoðanir þyrftu ekki að ómaka sig við að sækja um störf hjá útgerðarrisanum í því sjávarplássi.
Gísli segir engan vafa leika á að þetta sé ólöglegt. Hann vísar í lög frá 1938