Skaftárhlaupið er kröftugra en nokkur fyrri dæmi eru um. Óttast er að brýr gefi sig. Stórfellt tjón hefur orðið á landi og vatnsrennslið í Skaftá myndi fylla Laugardalslaug á einni sekúndu eftir því sem fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins.
Búið er að loka brúnni við Eldvatn í öryggisskyni en lögregla telur erfitt að meta hvort stöplar brúarinnar muni gefa sig.
Tún eru undir vatni sem og kál- og kornakrar, útikamar við tjaldstæði flýtur um sem og fjöldi af heyrúllum samkvæmt fréttum Ríkisútvarpsins.