Rennsli skaftár fjórfaldaðist í nótt

Skaftárhlaupið sem nú stendur yfir virðist vera að ná hámarki, en rennsli Skaftár við Sveinstind er rúmlega 600 rúmmetrar á sekúndu og hefur nær fjórfaldast frá því á miðnætti, þegar það var um 130 rúmmetrar.
 
Benedikt Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir í samtali við fréttavef RÚV í morgun að flóðið fari hratt af stað og fyrstu merki í byggð ættu að vera um hádegi.Hann segir erfitt að segja hversu stórt flóðið verði en það fari mjög hratt af stað og því búist við að það verði í stærri kantinum: \"Það vex mjög hratt vatnshæð og leiðni við Sveinstind. Vatnshæðið er að nálgast fjóra metra og hefur hækkað mjög hratt síðustu tvær klukkustundir. Við verðum aðeins að leyfa tímanum að líða til að sjá þróunina áður en við getum séð betur hversu stórt þetta flóð verður,“ segir hann við RÚV.
 

Hlaup úr Eystri-Skaftárkatli eru alla jafna stærri en hlaup úr vestari katlinum og þau eru jafnframt sjaldgæfari. Síðast hljóp úr honum fyrir fimm árum.