Ætlar Donald Trump að láta til skarar gríða gegn sérstökum saksóknara, Robert Mueller?
Miklar vangaveltur voru um þetta í bandarískum fjölmiðlum um helgina eftir að Bandaríkjaforseti tók syrpu á Twitter og fagnaði ruddalegum brottrekstri Andrews McCabe fyrrum aðstoðarforstjóra FBI, 26 klukkustundum áður en McCabe hefði komist á eftirlaun.
Trump sagði brottreksturinn sigur fyrir lýðræðið og sendi auk þess frá sér röð af Twitterfærslum þar sem hann skammaðist út í Mueller og rannsókn hans á afskiptum Rússa af forsetakosningunum 2016. Eftir því var tekið að þetta var í fyrsta skipti sem Trump nefndi Mueller á nafn á Twitter.
McCabe hefur nú afhent sérstökum saksóknara minnisblöð sín af fundum með Trump, þar sem hann var vitni að brottrekstri James Comey þáverandi forstjóra FBI.
Það jók á vangavelturnar um brottrekstur Muellers á laugardag, að John Dowd, persónulegur lögmaður Trumps, hvatti Rod Rosenstein, settan dómsmálaráðherra í málefnum rannsóknarinnar, til að sýna sama hugrekki og Sessions dómsmálaráðherra gerði á föstudag í máli McCabes og binda enda á rannsókn Muellers.
Nokkrir þingmenn Repúplíkana vöruðu hins vegar sterklega gegn því að forsetinn léti reka Mueller. Þannig sagði til dæmis Lindsey Graham öldungadeildarþingmaður að það „yrði upphaf endaloka hans í embætti.“
Ty Cobb, einn helsti lögmaður Hvíta hússins, sló loks síðdegis í gær á þessar vangaveltur með því að lýsa því yfir að Trump hefði ekki í hyggju að láta hætta rannsókninni.