Rektor mr: opnari skil milli skólastiga

Það þarf að opna skilin á milli grunnskólans og framhaldsskólans ef framþróun á að verða á sviði menntamála. Eðlilegt flæði á milli þessara skólastiga er af hinu góða.

Þetta voru meðal þeirra meginskilaboða sem fram komu í máli Yngva Péturssonar, rektors Menntaskólans í Reykjavík sem var gestur Ólafanna í samnefndum þjóðmálaþætti á Hringbraut í gærkvöld.

Þáttinn má sjá r á vef stöðvarinnar, en þar ræddu Ólafarnir við þennan þrautreynda og virta skólamann um mikilvægi þess að hugsa námið á Íslandi sem samfellu.