Rekstur þjóðgarðs undir smásjá

Fjárreiður og rekstur Vatnajökulsþjóðgarðs sætir nú úttekt óháðs aðila að beiðni umhverfis- og auðlindaráðuneytisins vegna framúrkeyrslu á fjárheimildum garðsins.

Þetta kemur fram á forsíðu Fréttablaðsins í dag, en þar segir að ráðuneytið hafi kynnt stjórn sjóðsins um úttektina þann 19. janúar síðastliðinn eftir að gögn um fjárhag rekstursins blasti við töluverð umframeyðsla.

Ármann Höskuldsson, stjórnarformaður Vatnajökulsþjóðgarðs, segir í samtali við blaðið að hann geti ekki tjáð sig um málið fyrr en niðurstöur úttektarinnar liggi fyrir.

Samkvæmt stjórnsýsluvenjum ber að tilkynna öll frávik frá fjárhagsáætlun, en ný lög sem varða það ákvæði voru sett 2015.

Þjóðgarðurinn fékk 671 milljón frá ríkinu á síðasta ári.