Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa þungum áhyggjum af rekstri Reykjavíkurborgar. Þeir segja reksturinn í ólestri í stjórnartíð Samfylkingar og Besta flokksins og hafa ályktað vegna upplýsinga í dag þar sem niðurstaða rekstrarins 2015 er fimm millljarða króna tap en gert var ráð fyrir 7 milljarða afgangi. Skekkjan frá áætlun er 12 milljarðar en skýrir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tapið með hækkun á gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks segja rekstur Reykjavíkurborgar hafa verið í algjörum ólestri allt þetta kjörtímabil sem og kjörtímabilið 2010-2014 í höndum Samfylkingar og Besta flokksins. \"Rekstrarniðurstaðan er tap upp á 13,6 milljarða kr. A hluta er sláandi og þótt stór hluti þess sé einskiptis gjaldfærsla vegna hækkunar lífeyrisskuldbindinga er hinn almenni rekstur ekki í lagi séu þessar hækkanir dregnar frá en þá væri tapreksturinn 1,3 milljarðar kr.\"
\"Sést þetta enn betur með því að skoða veltufé frá rekstri sem segir hversu miklu fjármagni reksturinn skilar til fjárfestinga og greiðslu skulda. Veltufé frá rekstri er 5,7% af tekjum ársins en þyrfti að vera a.m.k. 9% þannig að reksturinn er langt frá því að skila nauðsynlegu framlagi. Niðurstaðan er enn eitt taprekstrarárið hjá núverandi meirihluta og forvera hans. Skuldaaukning A-hluta er 16,2 milljarðar kr. milli áranna 2014 og 2015.“