Rekstur neyslurýma verði heimilaður

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi sem kveður á um lagaheimild til að stofna og reka neyslurými. Markmiðið með rekstri neyslurýma er að draga úr skaðlegum afleiðingum af notkun ávana- og fíkniefna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Neyslurými er skilgreint í frumvarpinu sem „lagalega verndað umhverfi þar sem einstaklingar sem eru 18 ára og eldri geta neytt ávana- og fíkniefna í æð undir eftirliti heilbrigðisstarfsmanna og þar sem gætt er fyllsta hreinlætis, öryggis og sýkingavarna.“

Neyslurými eru ætluð sem skaðaminnkandi úrræði sem felst í því að draga úr heilsufarlegum, félagslegum og efnahagslegum afleiðingum notkunar ávana- og fíkniefna án þess endilega að draga úr notkun þeirra

Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um ávana- og fíkniefni sem gerir embætti landlæknis kleift að heimila sveitarfélagi að stofna og reka neyslurými að uppfylltum nánari skilyrðum sem heilbrigðisráðherra setur um rekstur þeirra, t.d. þjónustu, hollustuhætti, hæfni starfsfólks og upplýsingagjöf.

Undirbúningur að opnun neyslurýmis í Reykjavík hefur staðið yfir um skeið. Fyrir liggur að velferðarsvið Reykjavíkurborgar muni taka þátt í verkefninu og í fjárlögum þessa árs eru 50 milljónir króna ætlaðar til þessa málefnis.

Jákvæð reynsla annarra þjóða

Í tilkynningunni er vitnað í greinargerð með frumvarpinu, þar sem kemur fram að reynsla annarra þjóða sýni jákvæð áhrif af neyslurýmum sem úrræði. Bent er á minni úrgang vegna notaðs sprautubúnaðar sem skilinn er eftir á víðavangi og bætt heilsufar þeirra sem nýta sér rýmin. Notkun þeirra hefur m.a. dregið úr tíðni HIV-smita og lifrarbólgu C og færri en ella deyja vegna neyslu á of stórum skammti. Fram hefur komið að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin og Evrópusambandið telja neyslurými mikilvægan þátt í að draga úr smitsjúkdómum og dauðsföllum vegna neyslu of stórra skammta.

Ávinningi af neyslurýma hefur verið skipt í þrennt, þ.e. persónulegum ávinningi fyrir notendur, samfélagslegum ávinningi sem sést best á umgengni í almenningsrýmum og fjárhagslegum ávinningi sem felst aðallega í styttri legutíma á sjúkrahúsum, snemmbúnum inngripum og lægri lyfjakostnaði vegna meðferðar við HIV-smiti og lifrarbólgu C.