Birgir ráðinn til ísafjarðar

Meirihluti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar hefur ákveðið að ráða Birgi Gunnarsson í starf bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar. Birgir er fæddur árið 1963 og er uppalinn á Siglufirði og lauk þaðan grunnskólanámi. Hann er stúdent frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki og rekstrarfræðingur frá Háskólanum á Bifröst. Því til viðbótar lauk hann námi í rekstri og stjórnun frá Háskólanum í Gautaborg. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ísafjarðarbæ.

Til loka ársins 2019 var Birgir forstjóri Reykjalundar endurhæfingarmiðstöðvar í Mosfellsbæ. Þar áður var hann forstjóri á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki, frá 1991-2007. Birgi var sagt upp störfum fyrirvaralaust í október 2019. Samkvæmt heimildum Hringbrautar var Birgir leiddur út úr skrifstofum Reykjalundar af stjórnarformanni og varaformanni stjórnar SÍBS sama dag og hann skrifaði undir starfsmannalokasamning. Samkvæmt heimildum Hringbrautar ásældist stjórn SÍBS leigutekjur sem Reykjalundur hefur af húsnæðinu en SÍBS leggur ekki fjármuni til rekstursins.

Hringbraut ræddi við starfsmenn Reykjalundar sem urðu vitni að því þegar Birgir var leiddur í burtu án nokkurra útskýringa. Þá fékk Birgir ekki tækifæri til að kveðja samstarfsfólk til margra ára, en hann þótti farsæll í starfi og var vel liðinn á meðal starfsfólks. Var starfsfólk slegið og var eins og áður segir ekki upplýst um af hverju brottreksturinn væri til kominn. Einn starfsmaður Reykjalundar segir að Birgi hafi ekki verið heimilað að taka eigur sínar af skrifstofu sinni, heldur var honum vísað beint út úr byggingunni. Starfsmenn Reykjalundar brugðust ókvæða við og í kjölfarið var lýst yfir vantrausti á stjórnina vegna tveggja brottrekstra lykilstarfsmanna.

Birgir hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum s.s. setið stjórn Norræna heilbrigðisháskólans í Gautaborg, verið formaður Landssambands heilbrigðisstofnana, formaður Félags forstöðumanna heilbrigðisstofnana og ýmislegt fleira.

Birgir mun hefja störf 1. mars en ráðningin er með fyrirvara um samþykki bæjastjórnar sem kemur næst saman 20. febrúar.