Reiðilestur margrétar: „ég lét blekkjast [...] aldrei datt mér í hug að þú mundir snúa svona baki við okkur“

Margrét Sölvadóttir, þýðandi og eftirlaunaþegi er afar ósátt og reið Katrínu Jakobsdóttir forsætisráðherra. Hún birti opið bréf sem hefur farið sem stormsveipur um samskiptamiðilinn Facebook. Eyjan vekur athygli á bréfinu en þar er haft eftir Margréti:

„Þú sem fékkst mig til að kjósa þig og þinn flokk af því að þú ætlaðir að gera mitt líf og annarra ellilífeyrisþega sómasamlegt og stoppa þann stuld sem ríkisstjórnin hefur af eldri borgurum,“ segir Margrét í bréfinu og bendir á að Katrín hefur því miður ekki hafa staðið við þessi loforð.

„Mig langar að segja þér að á mánuði fæ ég 149.000 kr í ellilífeyri eftir að búið er að taka skatt og skerða hann og þetta er minn mánaðar lífeyrir, eruð þið svo blönk í ríkisstjórninni að þið verðið að fá pening hjá ellilífeyrisþegum til að tæma ekki kassann? Hvernig væri að eyða minna?“

Þá spyr Margrét hvar mörkin liggi:

„Sú upphæð sem ætlast er til að fólk þurfi til að lifa af, hver er hún? Þú talar um hve hagstætt verðlag sé á Íslandi og hagsældin mikil en hve mikið get ég keypt fyrir þessar krónur sem þín ríkisstjórn skilur eftir fyrir mig til að lifa á þegar þið hafi stolið mínum sparnaði og meira að segja stolið þeim litlu vöxtum sem sparibókin mín fékk á þessu ári, hverri einustu krónu,“ segir hún og bætir við:

 „Af hverju þorirðu ekki að standa upp í hárinu á Bjarna Ben? Af hverju gastu ekki verið stolt okkar kvenna í stað þess að láta karla ganga yfir þig á skítugum skónum og sjálfsagt hlægja að þér líka? Þetta mun reynast þér illa því fólk er dæmt af gjörðum sínum.“

Þá segir Margrét að lokum:

„Ég lét blekkjast og fékk fólk til að kjósa þig, aldrei datt mér í hug að þú mundir snúa svona baki við okkur og þeim málstað sem þú þóttist standa fyrir.“