Reiðilestrar ekki sannfærandi

„Það er mikið tala um múslima hérlendis og sú umræða einkennist mikið af reiði og sleggjudómum. Maður sér reglulega fólk kalla Múhamed og alla sem segjast fylgja hans fordæmi vera hryðjuverkamenn og barnaníðinga,“ skrifar Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata í pistli sínum á hringbraut.is sem vakið hefur athygli. Þar segist hann ítrekað hafa átt mjög löng og áhugaverð samtöl um íslam við múslima þar sem kafað hafi verið í Kóraninn til að átta sig á gildi trúar. „Oft hefur það fengið bæði mig og múslimann sem ég ræði við hverju sinni til að efast aðeins um eigin hugmyndir,“ skrifar Helgi áfram og segir þessar pælingar stundum kveikja nýja skoðun. „En það sem ég hef aldrei upplifað,“ heldur Helgi Hrafn áfram „er að múslimi efist um trú sína vegna þess að einhver kallaði hann hryðjuverkamann og barnaperra. Ég hef enn fremur aldrei skoðað íslamska guðfræði með áhuga í kjölfar þess að vera uppnefndur melludólgur og hundur,“ segir þingmaðurinn og botnar grein sína: „Málið er nefnilega þetta; reiðilestrar eru ekki efnislega sannfærandi.“