Reiðik­ast pogba í gær vek­ur at­hygli

Paul Pogba, leikmaður Manchester United og franska landsliðsins, var allt annað en sátt­ur við tæk­lingu Rún­ars Más Sig­ur­jóns­son­ar á Kyli­an Mbappé í vináttu­leik Frakka og Íslend­inga ytra í gær­kvöldi. 

Pogba brást ill­ur við og þurftu liðsfé­lag­ar hans að róa hann niður eft­ir smá stimp­ing­ar á milli leik­manna á hliðarlín­unni. At­vikið hef­ur vakið at­hygli fjöl­miðla og hér að neðan má sjá viðbrögð þeirra. 

Mynd­ir af at­vik­inu fylgja með frétt­un­um, en að lok­um virt­ust all­ir skilja sátt­ir. 

Daily Mail: Brjálaður Paul Pogba ræðst inn á völl­inn af bekkn­um til að ræða við leik­menn Íslands eft­ir harða tæk­lingu á Kyli­an Mbappé

Daily Star: Paul Pogba brjálaður eft­ir tæk­lingu á Kyli­an Mbappé. Man. Utd stjarn­an ræðir við dóm­ar­ann á vell­in­um 

Express: Paul Pogba brjál­ast eft­ir tæk­lingu á Kyli­an Mbappé 

Sky Sports: Halda þurfti aft­ur á Pogba eft­ir tæk­lingu á Mbappé skap­ar usla hjá Frökk­um

Nánar á

https://www.mbl.is/sport/fotbolti/2018/10/12/reidikast_pogba_i_gaer_vekur_athygli/