Reiði út af dómi þórðar: nauðgaði barni og sýndi enga iðrun vegna andláts 5 ára stúlku

Landsréttur mildaði í síðustu viku dóm yfir Þórði Juhasz sem áður hét Þórður Jónsteinsson. Þórður sem er 31 árs var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í héraðsdómi fyrir að nauðga 14 ára stúlku á hrottalegan hátt í Heiðmörk. Þórður hefur áður hlotið refsidóma, árið 2008 var hann dæmdur í 12 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að valda slysi þar sem 5 ára stúlka lét lífið og bróðir hennar lamaðist og farþegi í bíl hans lést. Sagði Þórður að hann iðraðist ekki og neitaði að hafa ekið of hratt. Spurður hreint út hvort hann iðraðist, sagði Þórður. „Iðrast? Ég? Ég var ekki að taka fram úr.“ Árið 2009 var Þórður svo dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart tólf ára stúlku. Málið hefur vakið mikla reiði á samfélagsmiðlum og þá hafa RÚV og mbl.is fjallað ítarlega um málið.

Milduðu dóminn

Saksóknari fór fram á þyngri refsingu vegna hinnar hrottalegu nauðgunar í Heiðmörk en dómarar í Landsrétti ákváðu að milda dóminn um hálft ár. Það sem vekur athygli er að engin rök eru færð fyrir þeirri ákvörðun að milda dóminn og áttar Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir saksóknari sig ekki á niðurstöðunni. Þá eru margir reiðir á samfélagsmiðlum.

Þórður náði eftir nokkra hríð, árið 2016 að sannfæra stúlkuna um að hitta sig. Fór hann með hana upp í Heiðmörk. Í dómnum kemur fram að stúlkan hafi strax í bílnum verið orðin óttaslegin. Þá kemur fram í dómnum að Þórður hafi nýtt sér yfirburðastöðu sína vegna aldursmunar og hún hafi verið fjarri öllum og engin getað hjálpað henni. Þar nauðgaði hann stúlkunni og hélt henni fastri.

Vissi aldur hennar

Þórður var margsaga í vitnisburði. Að lokum sagðist hann ekki kannast við stúlkuna en dómari sagði að enginn vafi væri á því að Þórður hefði vitað aldur hennar. Þá fannst excel-skjal í tölvu Þórðar sem síðast var breytt 27. nóvember árið 2016. Þar var að finna skrá um nöfn stúlkna og kvenna og hvaða ár þær væru fæddar. Þá voru kynferðislegar athafnir færðar inn í skjalið við hvern og einn einstakling.

Fjölmargir hafa gagnrýnt Landsrétt harðlega eftir dóminn. Í þeim hópi er Illugi Jökulsson rithöfundur. Illugi segir: „Fjögurra ára fangelsisdómur er ekki mikið fyrir nauðgun. En af hverju landsréttur mildaði þann dóm er óskiljanlegt.“ Þá segir Illugi í öðrum status og birtir mynd af Þórði: „Þetta er maðurinn sem landsréttur mildaði dóm yfir eftir að hann nauðgaði 14 ára barni. Hann iðraðist einskis eftir að hafa valdið banaslysi þar sem fimm ára stúlka dó, bróðir hennar lamaðist og farþegi í bíl Þórðar lét lífið.“ Fjölmargir taka í svipaðan streng. Unga Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir spyr: „Finnst einhverjum þetta eðlileg niðurstaða? Hvað er í gangi?“

Yfirvöld harðlega gagnrýnd

Gömul mál  tengd Þórði hafa einnig verið rifjuð upp. Þórður var eins og áður segir 5 ára stúlku að bana og lamaði bróður hennar. Þrátt fyrir það var Þórður aðeins sviptur ökuleyfi í fjögur ár. Þórður átti eftir slysið að vera tekinn minnst níu sinnum fyrir of hraðan akstur. Gagnrýndi faðir barnanna yfirvöld harðlega hvernig tekið var á málinu en Þórður hafði þrisvar verið tekið fyrir of hraðan akstur fyrir slysið. Í dómnum þar sem Þórður var aðeins dæmdur í eins árs fangelsi sagði: „Á tímabilinu 27. febrúar til 27. júlí 2007, það er eftir umrætt slys, var ákærði í alls níu skipti staðinn að því að aka bifreið yfir lögleyfðum hámarkshraða.“  DV fjallaði um málið á sínum tíma. Spurður hreint út hvort hann iðraðist, sagði Þórður: „Iðrast? Ég? Ég var ekki að taka fram úr.“Fjöldi fólk gagnrýnir að dómskerfið haldi áfram að fara mjúkum höndum um Þórð.

Íhuga að áfrýja

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir saksóknari áttar sig ekki á niðurstöðunni. Hún segir í samtali við Hringbraut

„Hann er dæmdur í fjögurra ára fangelsi í héraði. Við fórum fram á að sú refsing yrði þyngd. Síðan sé ég eins og þið að verið sé að vísa í sömu lagagreinar. Rökstuðningurinn er sá sami og í héraði og því get ég ekki getið mér til hvað það er sem veldur.“

Hafið þið íhugað að áfrýja þessu til Hæstaréttar?

„Það hefur ekki komið til tals. Það yrði þá ákvörðun ríkissaksóknara sjálfs ef svo verður.“

Flosi Hrafn Sigurðsson réttargæslumaður stúlkunnar vildi ekki tjá sig um dóminn á þessu stigi. Þá hefur ekki verið tekin ákvörðun hvort dómnum verði áfrýjað.