Reiddist ofboðslega og rauk úr pontu

Jóhannes Gunnar Bjarnason, fyrrum oddviti framsóknarmanna, segir að þegar umræða um rasisma innan flokksins stóð sem hæst hafi hann viljað ræða málið við Sigmund Davíð á opnum fundi á Akureyri. Þegar Jóhannes vildi spyrja foringjann vegna umræðu um Sveinbjörgu borgarfulltrúa og hennar ummæli hafi Sigmundur Davíð reiðst mjög spurningunni, talað um hnífstungur í eigin flokki og rokið úr pontu. Frá þessu greinir Kjarninn.

„Svo kom Sigmundur og flutti ræðu á fundinum og að henni lokinni voru fyrirspurnir. Ég spurði hvort hann vildi í góðu tómi taka af öll tvímæli með að þessi núningur við svona rasistadrasl í þessum málum sem borgarstjórnarflokkurinn var nuddað upp úr, að sekju eða ósekju, væri ekki það sem Framsóknarflokkurinn stæði fyrir. Hann reiddist ofboðslega og las mér pistilinn um að það væri eitt að eiga við pólitíska andstæðinga, en að það væri andstyggilegt að þurfa að fá hnífstungur úr eigin flokki. Svo rauk hann úr pontu,\" segir Jóhannes Gunnar um Sigmund Davíð í Kjarnanum.

Athygli hefur vakið að bakland Sigmundar Davíðs virðist brostið í Norðausturkjördæmi en þar fór hann fram síðast og vann mikinn sigur. Framsóknarmenn í hans eigin kjördæmi voru fyrstir framsóknarmanna til að fara fram á afsögn Sigmundar.

Karl Garðarsson, samflokksmaður Sigmundar Davíðs, segir um nýja skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar sem mælir um 13% fylgi við Framsóknarflokkinn: \"Átök síðustu daga hafa ekki haft neikvæð áhrif á fylgi stjórnarflokkanna, nema síður sé.\"