„Þetta kom eins og reiðarslag á samfélagið og held ég að sorg sé eina orðið sem hægt er að nota yfir tilfinningar fólks í samfélaginu hér,“ segir íbúi í Hrísey í samtali við Hringbraut.
Þar er vísað til nauðgunarmáls þar sem Hríseyingur er grunaður um að hafa grímuklæddur ráðust inn í tjald 17 ára stúlku og reynt að naugða henni.
Stundin sagði fyrst frá. Áður hafði Ríkisútvarpið, það er í sumar, sagt frá ofbeldismálinu en rannsókn breyttist eftir niðurstöðu lífsýnaprófs. Manninum var sleppt eftir yfirheyrslu í sumar en nú hefur hann verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 10. desember.
Í tilkynningu frá Lögreglunni á Akureyri segir:
„Þann 25. júlí s.l. var ráðist inn í tjald hjá erlendum ferðamanni á tjaldstæðinu í Hrísey. Um var að ræða 17 ára stúlku og bar hún að maður hefði veist að henni kynferðislega og einnig beitt hana líkamlegu ofbeldi. Sagði hún árásarmanninn hafa verið grímuklæddan. Konan hlaut nokkra áverka. Á sínum tíma var maður á þrítugsaldri handtekinn grunaður um verknaðinn og úrskurðaður í fjögurra daga gæsluvarðhald vegna rannsóknar málsins en látinn laus eftir að rannsóknarhagsmunir gáfu ekki tilefni til frekari gæsluvarðahalds á þeim tíma.
Í gærdag þann 11. nóvember var sami aðili handtekinn á ný grunaður um verknaðinn eftir að niðurstöður úr DNA rannsóknum lágu fyrir. Var hann nú í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Norðurlands eystra til 10. desember n.k. Var það gert á grundvelli alvarleika málsins.“
„Auðvitað fylgir því ákveðinn léttir að eitthvað er að rofa til í þessu máli,“ segir íbúinn í Hrísey sem Hringbraut ræddi við og á þá við að ekki leiki lengur vafi á hvaða íbúi í Hrísey eigi í hlut. „Vegna þess að á meðan enginn er staðfestur gerandi, þá geta margir setið undir grun og það er ekki síst vont í litlu samfélagi.“