Reglum um hvalskurð var aldrei fylgt

Hvalur hf. fór aldrei að hertum reglum um hvalskurð frá árinu 2009. Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra slakaði á kröfunum sem hið opinbera setur um hvalskurð nú sumarbyrjun.

Árið 2009 tók í gildi reglugerð um vinnslu og heilbrigðiseftirlit með hvalaafurðum. Í henni var kveðið á um að hvalskurður skuli hefjast um leið og hvalur er kominn á land og að skurðarflöturinn skuli vera innandyra. Það ákvæði kom þó ekki til áhrifa fyrr en ári seinna, árið 2010. 

„Það er rétt að það hefur aldrei verið yfirbyggður skurðarflötur hjá Hval hf. eins og reglugerðin sagði til um,“ segir Freydís Dana Sigurðardóttir, fagsviðstjóri eftirlits búfjárafurða hjá Matvælastofnun, sem hefur eftirlit með starfsemi hvalveiðifyrirtækja Þessu ákvæði var því aldrei fylgt við skurð á stórhvelum. 

Nánar á

http://www.visir.is/g/2018180809362/reglum-um-hvalskurd-var-aldrei-fylgt-