Reglugerð um útlendinga óbreytt

Engar breyt­ingar hafa verið gerðar né heldur boð­aðar á nýrri reglu­gerð um útlend­inga sem dóms­mála­ráð­herra setti í mars og þrengir að mati Rauða kross­ins á túlkun á því hvenær sér­stakar ástæður eigi við í málum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd og hvenær beri að taka mál sér­stak­lega við­kvæmra ein­stak­linga til efn­is­legrar með­ferð­ar. For­sæt­is­ráð­herra hitti dóms­mála­ráð­herra á fundi, en ekki fæst upp­gefið hvort málið var sér­stak­lega rætt þar.

Kjarn­inn greindi frá því í mars að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefði óskað eftir sam­tali við Sig­ríði Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra vegna máls­ins og vildi fara nákvæm­lega yfir gagn­rýni Rauða kross­ins og hvernig rétt sé að bregð­ast við því.

Nánar á eyjan.is;

https://kjarninn.is/frettir/2018-06-11-reglugerd-um-utlendinga-obreytt-eftir-fund-radherranna/